Thermaltake 850W GF1 80+ Gold fully-modular aflgjafi með hljóðlátri 12cm viftu og ARGB
Hljóðlátur og vandaður Thermaltake 850W aflgjafi með 80+ Gold vottun.
Thermaltake eru risar þegar kemur að framleiðslu á vönduðum aflgjöfum, kössum og kælingum.
Þessi týpa er sérstaklega glæsileg, með stýranlegri ARGB lýsingu. Aflgjafinn er með 80+ Gold vottun, sem tryggir góða nýtni og þar með litla hitamyndun. Kældur af 12cm viftu, og býr yfir snyrtilegum svörtum, flötum köplum, og hentar því vel fyrir kassa með gluggahlið.